03/11/2006

Nýtt BLOGG

Kalinn er búinn að færa sig á nytt blogg !!!

www.blog.central.is/siggi_svans

 

 

03/09/2006

Afmælisbarn

Í dag er 9.mars og enginn annar en Matti Steph á Afmæli og er folinn orðinn 20 ára.

TIL HAMINGJU MEÐ AFMÆLIÐ KALLINN MINN

03/05/2006

Bústaðurunn

Bekkurinn minn 3G skellti sér í bústað á föstudaginn ( 03.03.2006). Fólk skemmti sér mjög vel þarna og drakk einnig mjög mikið.....Ég tók myndir af þessu öllu saman og verða þær undir linknum MYNDIR (bustaðarferð 3G)

Kveðja SIGGI SVANS........

02/28/2006

Bikarinn í voginn

Núna á sunnudaginn var bikarúrslitaleikur 2.flokks karla í handbolta. Leikurinn var haldinn í Laugardalshöllinni eins og venjan er. Í úrslitum voru ÍR og Víkingur/Fjölnir eða bara Fjölnir eins og ég vill kalla þá. En leikurinn var ekkert það skemmtilegur en sammt vantaði ekki spennuna í leikinn. Þegar það voru 30 sek eftir skoruðu fjölnismenn  21-20 og bökkúðu í vörn, ÍR-ingar fengu svo víti á seinustu sek leiksins.  Gátu þeir þá jafnað en Hjalti kallinn varði vítið og unnu strákarnir leikinn, annað árið í röð !!!! Ég vill bara óska strákunum til hamingju með titilinn !!

Herna er svo mynd af þeim með bikarinn eftir leikinn !!!

02/20/2006

Laugardagurinn - Mynd vikunnar

Í gær skellti ég mér með strákunum + önnu á Nasa, en Paparnir voru að spila þar og einnig voru þeir að taka upp live plötu....skemmtilegt að taka þátt í þvi, alveg pottþéttur á þvi að kaupa plötuna þegar hun kemur út !! En allavegna var stemmingin svakaleg eins og er alltaf þegar Panir eru að spila. Eftir ballið vorum við strákarnir svo hressir að við fóru á Hverifs. þar var DJ STEF að spila og klikkaði hann ekki frekar en fyrri daginn !! Eins og alltaf um helgar á Hverfis var tröðið en það sakaði ekki, það vantaði ekki stemminguna í liðið !! Þegar Hverfisbarinn var lokaður vorum við enn svo hressir að við fórum á Prikið og dönsuðum þar til að það var lokað og eftir það lá leiðin heim. Ég klikkaði auðvitað ekki á því að taka mydavélina með mér og tók ég myndir af þessu öllu saman...myndirnar eru allar undir linknum skemmtistaðir (bærinn) - Paparnir, Hverfis, Prikið !!!

En svo er það mynd vikunnar....Í þetta skipti eru þær tvær, ég gat ekki valið um hver átti að vinna það svo að setti bara báðar !!

Hérna er ég og Unnur Birna á Árshátíðinni hjá MS 2006

 

 

 

Hérna er Tryggvi og Unnur Birna á Árshátíðinni hjá MS 2006

02/18/2006

Árshátíð MS 2006

Árshátið MS-inga var haldin í gær þann 16.febrúar 2006. Ég get nú ekki sagt annað en að þetta hafi bara verið nokkuð vel heppnaður dagur. Byrjaði allt á þvi að krakkarnir hittust í morgunmat í skólanum og þar voru ýmis atriði og skemmtilegheit. Eftir það fór fólk heim og gerði sig reddy, sumir voru með fyrir fyrir party og ég var einn af þeim !! Ég, Tryggvi og Gummi hittumst heima hjá mér fyrir matinn og fengum við okkur nokkra öllara áður en haldið var í hann. Maturinn var svo sem ágætur, ekki alveg það besta sem ég hef fengið. En allt annað var maður sáttur með. Maður var svo auðvitað hæst ánægður með titilinn DJAMMDÝR MS !!!!  en eftir matitnn fór bekkurinn allur í fyrirpartyið sem haldið var heima hjá Davíð Fannari. Eins og í flestum partyum fyrir árshátiðina fóru fram kosningar innan bekkjarins og hérna koma úrslitin úr þeim.

Jackarinn: Tryggvi, Rass: Tryggvi, krútt: Tryggvi, augu: Anna, Bros: Anna, Bjartasta vonin: Davíð Fannar, Gáfnaljósið: Davíð Fannar, Hnakki: ég (siggi svans), Herra: Sverrir og Ungfrú: Jónina

Ballið heppnaðist vel og skemmti fólk sér konunglega. Páll Óskar var að gera góða hluti uppi sem DJ eins og hann gerir alltaf !!! Svo voru Stuðmenn einnig heitir niðri þó að maður hafi verið meira uppi hjá Palla !!

En svo tók ég auðvitað einhverjar myndir af þessu öllu saman nema ballinu sjálfu, var hræddur um að vélin mundi tínast vegna ölvunar svo að ég skildi hana eftir heima hjá Davið Fannari. En það eru myndir úr matnum og fyrirpartyinu !!! Þær eru allar undir linknum Myndir.

Svo ætla ég að óska þeim Tryggva og Gumma til hamingju með sigurinn í söngvakeppninni  !!!!!  HALELÚJA !!!

1 2 3 4 5 Next